Ánægja með forsetann aldrei meiri

Ánægja með störf Guðna Th. Jóhannessonar forseta Íslands hefur ekki mælst meiri en nú. Könnun MMR sem gerð var 3. til 10. Janúar sýnir að 81,4 prósent svarenda sögðust ánægð með störf forsetans. Aðeins 3,8 prósent sögðust vera óánægð.

Ánægja með störf Guðna reyndist mismunandi eftir stuðningi við stjórnmálaflokka en stuðningsmenn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks reyndust almennt séð ekki jafn ánægðir með störf forsetans og stuðningsmenn annarra flokka.

Fjöldi svarenda voru 954 einstaklingar á kosningaaldri.