Ný gögn styrkja endurupptöku

Ragnar Aðalsteinsson, hæstaréttarlögmaður og verjandi Erlu Bolladóttur og Guðjóns Skarphéðinssonar, segir að skýrslutökur sem fóru fram í gær vegna Guðmundar- og Geirfinnsmálsins muni styrkja mjög röksemd fyrir endurupptöku málsins í tilfelli allra sakborninga.

Þetta er haft eftir honum í Fréttablaðinu í morgun, en þar segir að auk formanns endurupptökunefndarinnar hafi tveir réttarsálfræðingar, sem sátu í starfshóp um málið gefið skýrslur sem Ragnar telji vega þungt. Tímaspursmál sé hvenær málið verður tekið upp á ný.

\"Þeir fóru ítarlega yfir niðurstöður sínar sem eru þær að framburður sakborninganna í þessum málum hafi verið óáreiðanlegur og í einu tilviki hafi verið um falska játningu að ræða, hjá Guðjóni Skarphéðinssyni. Þeir rökstuddu þetta ítarlega og gerðu grein fyrir því á faglegan hátt á hverju þeir byggðu þessar niðurstöður,“ segir hann í blaðinu í morgun.