Ný stjórn Færeyja stefnir að því að kosið verði um fullveldi eyjanna ekki síðar en eftir tvö ár, en stjórn Jafnaðarmanna undir valdataumunum í landinu í gærdag eftir að hafa náð forystu í færeyskum stjórnmálum í nýafstöðnum kosningum.
Færeyskir fjölmiðlar greina frá því að Høgni Hoydal, formaður Þjóðveldisflokksins, verði sjávarútvegsráðherra, og flokkurinn fari að auki með málefni fjármála og heilbrigðsmála. Framsókn fær atvinnumálaráðuneytið í sinn hlut, en mun einnig fara með utanríkismál. Þau hafa hingað til verið á könnu lögmanns.
Að því er fram kemur í stjórnarsáttmála flokkanna þriggja er stefnt að því að halda þjóðaratkvæðagreiðslu eftir tvö ár um breytta stjórnskipan sem tryggir Færeyingum fullveldi í öllum sínum málum. Þetta er nokkuð á svig við málflutning Jafnaðarmanna fyrir kosningar, en þá virtust þeir ekki boða fullveldi með jafn rækilegum hætti og slegið er í gadda í sáttmálanum. Þessi áherslubreyting er túlkun á þann veg í færeyskum fjölmiðlum í dag að Jafnaðarmenn hafi verið tilbúnir að fórna nokkurn veginn hverju sem er til að tryggja Johannesen lögmannsembættið.