Ný dögun

Í dag og í gær segja kínverskir fjölmiðlar að heimsókn forseta alþýðulýðveldisins Kína herra Xi til Bandaríkjnn boði nýja dögun í samskiptum ríkjanna. 

Kínverjar minna á að áformað er að Donald J. Trump heimsæki Kína seinna á þessu ári. Því sé fundurinn í Bandaríkjunum hluti af stærri mynd sem taka á sig skýrari form seinna á árinu.

Kínverjar árétta andúð stjórnvalda í Beijing á beitingu vopnavalds í milliríkja samskiptum. Kinverskír fjölmiðlar nefna þó varla árás Bandarikjanna í gær á sýrlenska heraflan. 

Fréttaskýrendur minna á hve mikilvæg þessi heimsókn herra Xi er því hann á í vök að verjast heima fyrir. Efnahagur Kína og hagvöxtur er stjórnvöldum í Beijing áhyggjuefni.

Viðskiptin við Bandaríkin eru sá möndull sé snýr kínverska hagkerfinu. Hnökralaus samskipti Kína og Bandarikjanna varða því herra Xi og meðstjórnendur hans í kínverska kommúnistaflokknum öllu.