Skrifað verður undir samning um byggingu sólarkísilverksmiðju á Grundartanga í dag, en þar halda hafnarstjóri Faxaflóahafna og forstjóri Silicor Materials á penna.
Um er að ræða mjög stóra verksmiðju á íslenskan mælikvarða, sem gæti framleitt um 16 þúsund tonn af kísil á ári. Gert er ráð fyrir að verksmiðjan verði allt að 400 manna vinnustaður.
„Starfsemin er í samræmi við það sem við teljum áhugavert verkefni, græn orka nýtt í umhverfisvæna starfsemi, mannfrek en hóflega orkukrefjandi auk þess sem henni fylgja flutningar og þörf á hafnaraðstöðu,“ sagði Gísli Gíslason hafnarstjóri Faxaflóhafna í samtali við heimablaðið Skessuhorn um áformin á síðasta ári, en þá var samningur enn ekki í hendi.
Nú verðiur hins vegar skrifað undir í dag.