Nv-land fær myndarlegan stuðning

Rúmum eitt hundrað milljónum verður varið til eflingar atvinnu á Norðurlandi vestra að því er kemur fram í breytingartillögum ráðuneytanna við fjárlagagerð á Alþingi.

Fréttablaðið greinir frá þessu.

Engar tillögur svokallaðar Norðvesturnefndar voru inni í fyrstu gerð fjárlaga skv. Fréttablaðinu en formaður byggðaráðs Skagafjarðar, Stefán Vagn Stefánsson, var formaður Norðvesturnefndarinnar.

Fréttablaðið segir: „Setja á tíu milljónir króna í bíódísilframleiðslu á Blönduósi, þrjátíu til viðbótar í frumkvöðlasetur í tengslum við Piopol ehf., 45 milljónir fara í eflingu selarannsókna í landshlutanum auk þess sem nýsköp unar- og frumkvöðlasetur á Sauðárkróki fær 14 milljónir. Annar sjóður, atvinnu- og nýsköpunarsjóður á Norðurlandi vestra, fær 10 milljónir. Að endingu mun svo Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga fá 35 milljóna króna framlag til að ráða starfsfólk svo hægt sé að fullnýta húsnæði stofnunarinnar. Aldraðir og veikir einstaklingar í nágrenni við Hvammstanga hafa upp á síðkastið þurft að leggjast inn í hvíld í Stykkishólmi, á Akranesi eða í Reykjavík, fjarri heimahögum og fjölskyldum.“

Fréttablaðið segir að átta tillögur Norðvesturnefndarinnar hafi fjallað um flutning opinberra starfa. „Svo virðist sem þær tillögur hafi ekki náð fram að ganga,“ segir blaðið.

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra er fyrsti þingmaður NV-kjördæmis. Hefur hann barist fyrir umbótum og fleiri störfum á NV-landi vegna viðvarandi fólksfækkunar.