Ísland, Noregur og Bretland hafa samþykkt bráðabirgða fríverslunarsamning vegna vöruviðskipta, komi til þess að Bretland gangi út úr ESB án útgöngusamnings. Með fríverslunarsamningnum halda núverandi tollkjör í grundvallaratriðum áfram að gilda fyrir inn- og útflutning vara til og frá Bretlandi. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.
„Bretland er afar mikilvægur útflutningsmarkaður íslenskra fyrirtækja en samningurinn mun tryggja áframhaldandi útflutning um 55.000 tonna af sjávarafurðum til Bretlands a.m.k. á sömu tollkjörum og gilda í dag,“ segir í tilkynningunni.
Formlegur útgöngudagur Bretlands úr ESB er áætlaður þann 29. mars næstkomandi. Þrátt fyrir það liggur ekki enn fyrir hvernig útgöngu verði háttað, þ.e. hvort hún verði með eða án útgöngusamnings eða hvort útgöngudegi verði frestað. Frestun er talin líkleg en þó er enn einhver hætta á útgöngu án samnings.
Í tilkynningunni segir einnig að íslensk stjórnvöld haldi því áfram að undirbúa sig fyrir mismunandi sviðsmyndir og að bráðabirgðasamningurinn sé mikilvægur liður í þeirri undirbúningsvinnu. Unnið er að því að tryggja að bráðabirgðasamningurinn geti tekið gildi strax við útgöngu ef þörf væri á því. Einnig hafa íslensk stjórnvöld lokið samningaviðræðum um réttindi íslenskra ríkisborgara sem búa í Bretlandi og á sviði flugmála.
Fari svo að útgöngusamningur Bretlands og ESB nái fram að ganga tekur aftur á móti við bráðabirgðatímabil þar sem EES-samningurinn og aðrir samningar Íslands við ESB halda áfram að gilda um Bretland til loka árs 2020, með möguleika á framlengingu.