Símtöl nú ódýrari

Í dag falla niður sérstök reikigjöld innan EES - svæðisins.

Neytendur frá löndum þeim sem tilheyra EES - svæðinu borga nú það sama fyrir símanotkun og gagnamagn á ferðalögum sínum innan EES-svæðisins og þeir borga heima hjá sér.

Hvað varðar símtöl og SMS skeyti gildir heimaverðskrá um alla notkun.

Sama verðskrá gildir í reiki og gildir innnanlands. Innifaldar mínútur og innfalin SMS eru þar meðtalin. Einnig ef viðkomandi áskrift býður ótakmarkaðar mínútur og / SMS skeyti.  

Hvað gagnamagn varðar þá gilda reglur um sanngjörn not.

Símafyrirtæki hafa heimild til að setja mörk á hve mikið gagnamagn má nota samkvæmt innanlandskjörum. Skylt er að segja notendum frá því hver þau mörk eru.

rtá

Nánar www.pfs.is