Ólafi Arnarsyni, formanni Neytendasamtakanna, er brugðið vegna þess að í frumvarpi til fjáraukalaga er gert ráð fyrir að verja eitt hundrað milljónum króna, af almannafé, til að freista þess að selja umframbirgðir lambakjöts til útlanda. Og ekki bara það, markmiðið því er að koma í veg fyrir að kjöt lækki í verði til íslenskra neytenda.
Ólafur, sem er í viðtali í Þjóðbraut í kvöld, er hvass. Hann segir nú reyna á alla þá nýju þingmenn, hvort þeir samþykki þetta háttarlag eða hvort þeir komi til með að standa með íslenskum neyendum.
Ólafur bendir á að kjötverðið hafi áhrif á neysluvísitöluna og þá um leið á verðtrygginguna. Hann segir inngrip stjórnvalda því hafa margföld áhrif.
Þjóðbraut er á dagskrá klukkan 21:00 í kvöld.
-sme