Karl Ágúst Úlfsson sló ekkert af kaldhæðni sinni og gamni gráu í inngangsorðum sínum í sjónvarpsþættinum Helginni í gærkvöld, en þar voru helstu gerendur fréttamála líðandi stundar dregnir sundur og saman í háði og spotti.
\"Þjóðin átti eflaust misjafna viku,\" byrjaði leikstjórinn að segja, \"en það er nokkuð klárt að fyrirtækið Frumherji átti fína viku. Frumherji keypti orkumæla af Orkuveitunni fyrir nokkrum árum á þrjúhundruð milljónir, leigði síðan Orkuveitunni þessa sömu mæla fyrir rúma fimm milljarða næstu árin og seldi svo Orkuveitunni mælana fyrir einn og hálfan milljarð. Þetta er brilljant,\" fullyrti Karl.
\"Og talandi um viðskiptasnillinga,\" hélt hann áfram \"þá var það einn slíkur, Finnur Ingólfsson, sem gerði Frumherja að því sem hann er, en Finnur hefur víða komið við, bæði í pólitík og viðskiptum. Eða eins og segir í kvæðinu:
HANN TYLLTI RASSI Í RÁÐHERRASTÓL
ÞÁ TÓK AÐ RÍSA HANS FRAMSÓKNARSÓL
MENN VISSU AÐ HANN VAR HÖFUÐÐPAURINN
SAMT HEFUR ENGINN NEITT Á FINN.
OG ÞVÍNÆST Í SEÐLABANKANN SENDUR HANN VAR
TIL SÉRSTAKRAR EINKAVÆÐINGAR
Á RÍKISBÖNKUM OG BÚNAÐAR
HANN BARÐI SAMAN REGLUGERÐ ÞAR
OG GAT ÞVÍ SÉÐ UM AÐ BANKINN YRÐI SINN
SAMT HEFUR ENGINN NEITT Á FINN
Og prestar þjóðkirkjunnar deila enn um það hvort þeim sé skylt að gefa saman samkynja pör ef það stríði gegn samvisku þeirra. Þarna sjáum við það svart á hvítu hversu tímabært það er orðið að einkavæða þjóðkirkjuna, þannig að reglur um opinbera starfsmenn gildi ekki um presta. Því eins og við þekkjum úr bankakerfinu kemur orðið „Samviska“ hvergi fyrir í reglum um einkafyrirtæki.
Og það voru ýmsir fleiri að gera það gott í viðskiptalífinu. Guðfinna Bjarnadóttir, fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins, rekur fyrirtækið L.C. ráðgjöf. Að minnsta kosti tvö ráðuneyti hafa keypt ráðgjöf af Guðfinnu og auk þess hefur Landspítalinn greitt henni tugi milljóna fyrir að gefa sér góð ráð. Aftur á móti virðist enginn vita hvaða ráð voru gefin eða hver fékk þau, en þau hafa greinilega verið mjög góð, því eins og við vitum eru góð ráð dýr. Ég giska á að Guðfinna hafi ráðlagt þeim sem til hennar leituðu að ganga í réttan stjórnmálaflokk,\" sagði þáttastjórnandinn og brast svo í söng:
\"Ó GUÐFINNA
(Eniga meniga Guðfinna)
MÁ ÉG KYNNA
(Vantar þig peninga, Guðfinna?)
FÉ, HEILLIN GÓÐ
(Vertu ekki kvíðin, þú færð þá nokk)
ÚR RÍKISSJÓÐ
(Bara ef þú ert í réttum flokk)
Mér skilst að næsta ráðgjafaverkefni fyrirtækisins sé að koma með tillögur um hvernig megi draga úr spillingu í opinbera geiranum. Árni Sigfússon mun hafa boðið fram aðstoð sína og segir að þetta sé alveg rakið verkefni fyrir bróður sinn.
Og það er rennandi vatn á Mars.. Nú þurfum við bara að mennta fleiri pípulagningamenn. Og svo kemur Frumherji og leigir okkur mæla til að mæla vatnsrennslið og málið er dautt. Nokkrir milljarðar þar.
Og talandi um vatn, maður lifandi. Stærsta Skaftárhlaup sögunnar er dunið á okkur. Helstu fræðimenn eru þegar sestir yfir málið til að finna út hvernig hægt sé að tryggja Finni Ingólfssyni fasta prósentu af rennslinu þegar það nær hámarki.
EF ÞÚ FREMUR AFBROTIN GRÓF
ENGINN GETUR KALLAÐ ÞIG ÞJÓF
EN EF ÞÚ STELUR STÓRT Á VIÐ FINN
ÞÉR STINGUR ENGINN MAÐUR INN
ÞAÐ FINNUR ENGINN NEITT Á FINN
Og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra lýsti því yfir á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna að Íslendingar myndu draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 40% á næstu árum. Sumir áttu erfitt með að átta sig á þessu loforði, en svo kom í ljós að Sigmundur hafði fengið sérfræðinga hjá Volkswagen til að stilla á sér talfærin þannig að réttar tölur kæmu út.
Og í beinu framhaldi hafa Volkswagenverksmiðjurnar ákveðið að snúa vörn í sókn og gera Volkswagen að þjóðarbíl Íslendinga.
HANN ER EINS OG ÍSLENSKUR ÞINGMAÐUR
FYRIR KOSNINGAR LOFAR HANN ÖLLU FÖGRU
EFTIR KOSNINGAR ER SPILLINGARMENGUNIN ALVEG JAFNMIKIL OG ÁÐUR
EN HÚN SÉST EKKI Á MÆLITÆKJUM
ÞAÐ ER ÍSLENSKA LEIÐIN
DAS AUTO
VIÐ VITUM AÐ HANN ER AÐ LJÚGA - EN OKKUR ER ALVEG SAMA\"