Jafnrétti verður rætt í kosningaþætti Þjóðbrautar í kvöld. Jafnrétti kynjanna, trúarbragða, kynstofna og þar sem það á við.
Til þáttarins mæta þrír frambjóðendur til Alþingis. Eygló Harðardóttir Framsóknarflokki, Svandís Svavarsdóttir Vinstri græn og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Pírati.
Ljóst er að þær munu allar tala af þekkingu um þessi mál og því má búast við upplýsandi og skemmtilegum umræðum.
Þjóðbraut er á dagskrá klukkan 21:00 í kvöld.