„Það var átakanlegt að lesa viðtal við Steingrím J. Sigfússon, forseta Alþingis, á vef Morgunblaðsins, þar sem hann lýsti áhyggjum sínum yfir pólitískum réttarhöldum á Spáni yfir katalónskum sjálfstæðissinnum.“
Þannig hefst pistill sem birtur er á Viljanum en þar situr Björn Ingi Hrafnsson í ritstjórastól. Þar fær Steingrímur J. Sigfússon forseti Alþingis fyrir ferðina. Í viðtalinu í Morgunblaðinu kemur fram að Steingrímur hafi lýst yfir þungum áhyggjum vegna þess að Carme Forcadell, fyrrverandi forseti Katalóníuþings, hafi fyrr í mánuðinum hlotið þungan fangelsisdóm, ellefu og hálft ár. Sendi Steingrímur bréf til forseta Alþjóðaþingmannasambandsins (IPU) og forseta Evrópuráðsþingsins og gagnrýndi um leið það gæsluvarðhald sem Carme Forcadell var úrskurðaður í á meðan réttarhöldum stóð og vísaði til ákvæða í Mannréttindasáttmála Evrópu.
Á Viljanum segir að Steingrímur sé miður sín vegna málsins en síðan er bent á tvískinnung þingforsetans. Á Viljanum segir:
„Þetta er sami maður og stóð fyrir ömurlegum pólitískum réttarhöldum fyrir Landsdómi yfir Geir H. Haarde, fv. forsætisráðherra. Og sami maður og greiddi atkvæði með því að ákæra þrjá aðra íslenska stjórnmálamenn fyrir Landsdóm, þau Árna M. Mathiesen, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og Björgvin G. Sigurðsson.“
Pistlinum lýkur svo á þessum orðum: „Þá sagðist hann gera það hryggur í bragði, en annað væri ekki hægt að gera.
Svona svipað og spænskir stjórnmálamenn segja nú sem réttlætingu fyrir ömurlegum leiðangri sínum.“