Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra, telur aukningu smita hér á landi vera ógnvænlega þróun en 61 einstaklingur greindist með Covid-19 veiruna síðastliðinn sólarhring.
„Nú er komið að því að það þurfi að grípa til aðgerða,“ sagði Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra, í samtali við Fréttablaðið.
Fáir greinast í sóttkví
„Staðan er mjög alvarleg, við værum ekki í umræðu um hertari aðgerðir ef við teldum ekki ástandið vera mjög ógnvænlegt og sæjum hættu á veldisvexti í faraldrinum.“ Víðir kvaðst ekki vita hvaða takmarkanir Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, myndi leggja til. Minnisblað þess efnis yrði þó sent til heilbrigðisráðherra í dag.
„Það er mikið áhyggjuefni hversu margir eru að greinast utan sóttkvíar,“ segir Víðir en aðeins tuttugu af þeim 61 sem greindust síðastliðinn sólarhring voru í sóttkví.
Vinahópar útsettir fyrir smiti
Víðir segir flest smit vera að greinast þegar vinir og kunningjar hópast saman, til að mynda í heimahúsum, krám, líkamsræktarstöðvum eða í göngu.
„Grunnurinn virðist liggja í því að þegar fólk er í einhverjum hópi þar sem það kannast við fólk þá passi það sig minna en í kringum fólk sem það þekkir ekki neitt.“ Allt of mörg dæmi séu um smit í slíkum aðstæðum.
Þess vegna þurfi landsmenn að gæta sín alveg sérstaklega næstu tvær þrjár vikurnar. „Það er bara þannig.“