Nú er illa brugðið bleik

Stjórnmálaskýrendur fara að öllu með gát þegar þeir kryfja til mergjar hvað gerðist  markvert og hvað ómarkvert á stefnumóti ríkisoddvita G20 hópsins í Hamborg í Þýskalandi í vikuni. 

Evrópusambandsríkin í heild  - en þó einkum Þýskaland - vita nú með vissu að þau mega fylgja eftir þeim hagsmunum sínum sem þeim hentar svo fremi sem þeir hagsmunir rekast ekki á við hagsmuni Bandaríkjanna.

Kanslari Þýskalands notar stefnumótið sér til framdráttar í þýskri innanríkispólitík enda voru Þjóðverjar gestgjafar.

Skilaboð Donald J. Trump eru ótvíræð.

Evrópuríki NATO skulu eftirleiðis bera að fullu sinn hlut af útgjöldum NATO til að létta undir með Bandaríkjunum sem munu ekki lengur vera jafn örlát á fé til NATO og áður. 

Bandaríkin munu aldrei umgangast Rússland og Kína sem jafnoka heldur sem þau ríki sem eru helsta orsök óstöðugleika í alþjóðasamskiptum. 

Bandaríkin hafa fyrst og fremst sent Rússlandi ótvíræða skilaboð. Í boði er milliliðlaust samstarf Bandaríkjanna við Rússland í skýrt afmörkuðum málum. Annað ekki. 

 

 

 

 

[email protected]