Nú er bara af eða á

Katrín Jakobsdóttir var áheyrileg í þætti á Bylgjuni fyrr í morgun. 

\"Við erum langt komin\" sagði Katrín. 

\"Við erum ekki búin að loka málinu\"  áréttaði hún. 

Á oddvitunum þremur hvílir að  \"...gera það í dag eð á morgun...\" sagði Katrín. 

Heilmild Hringbrautar segir vinnumarkaðsmál og ríkisfjármál stóru málin. 

Skattheimtuhugmyndir VG eru sem sé enn ásteitingarsteinn. 

Annað segir Katrín - stóru málin séu heilbrigðismál og menntamála og samgöngumál. 

Líkast til má umorða það sem heimildir Hringbrautar segja og það sem haft er eftir Katrínu Jakobsdóttur. 

Ágreiningur oddvitanna þriggja er um hvernig fjármagna á kosningaloforðin og brýnu verkefnin. 

Og hverngi forgangsraða á því fé sem aflað með nýrri ofurskattheimtu.

Nú er bara af eða á. 

[email protected]