NPA þjónusta var eitt málanna sem Alþingi hefði vel getað klárað fyrir þinglok segja þingmenn Viðreisnar og Pírata en málið var sett í farveg innan velferðarnefndar fyrir þinglokin í fyrrnótt. Dæmi eru um að fatlaðir einstaklingar hafi beðið í fimm ár eftir því að geta sótt um slíka persónustýrða aðstoð sem gerir þeim kleift að stýra lífi sínu sjálfir í mun meira mæli en áður. Málið hefur ekki í nokkur misseri náðst að klára af hálfu þingsins.
Hvað einkenndi þinglokin framar öðru? Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, Ármann Birgisson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Pírati mæta á Þjóðbraut til Lindu Blöndal í kvöld kl.20.
Birgir nefndi að NPA málið hefði ekki verið fullklárað og því ekki afgreitt. Hanna Katrín benti þá á að breytingar á lögum um uppreist æru og breytingar á útlendingalögum séu enn lengra í frá fullkláruð.
„Ég er þess fullviss að þeir hnökrar sem eru á þessu máli séu sannarlega ekki meiri en á uppreisn æru málinu eða útlendingalögunum\", segir Hanna Katrín. Birgir bendir á að athugasemdir um að málið væri ekki fullklárað hefði komið úr flestum flokkum á þingi.
Alþingi lauk í fyrrinótt. Þingið var að störfum frá 12. september og stóð yfir í 16 daga en ríkisstjórnin ríkisstjórnin tók við völdum 11.janúar eftir meira en 70 daga starfsstjórn. Í dag er einnig starfsstjórn sem heldur í horfinu eins og sagt er en kosningabarátta framundan. Eftir mánuð verða haldnar þriðju kosningarnar á fjórum árum.