Nova og vodafone stærri en síminn

Fjarskiptafyrirtækið Síminn hefur gefið heldur eftir í markaðshlutdeild sinni á síðustu misserum og eru Vodafone og Nova orðin stærri á sínu sviði en gamli ríkisrisinn.

Áskrifendum að farsímaþjónustu á Íslandi fjölgaði um 2,4 prósent á síðasta ári, eða um rúmlega ellefu þúsund. Alls eru nú 462.026 virk símakort á farsímaneti hjá íslenskum fjarskiptafyrirtækjum. Aukning hefur orðið í samningsbundnum áskriftum en fyrirframgreiddum símakortum, oft kölluð frelsiskort, hefur fækkað. Þrjú fyrirtæki skipta markaðinum nánast algjörlega á milli sín. Nova er stærst með 33,2 prósent markaðshlutdeild, Vodafone er með 32,8 prósent markaðshlutdeild en Síminn er minnstur hinna þriggja stærstu með 32,3 prósent markaðshlutdeild. Samtals eru Nova, Vodafone og Síminn því með 98,3 prósent markaðshlutdeild á farsímamarkaði. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýjustu tölfræðiskýrslu Póst- og fjarskiptastofnunar sem sýnir stöðuna á fjarskiptamarkaði í lok síðasta árs.

Staða Símans á farsímamarkaði hefur breyst mjög hratt á skömmum tíma. Fyrirtækið var með mesta markaðshlutdeild á markaðnum frá upphafi farsímavæðingar. Um mitt ár 2008 var Sím­inn t.d. með 56,6 pró­sent mark­aðs­hlut­deild á far­síma­mark­aði. Í lok árs 2015 gerðist það í fyrsta sinn að annað fyrirtæki náði þeim áfanga að vera með flesta viðskiptavini í farsímaþjónustu, þegar Nova tók fram úr Símanum. Nú hefur Vodafone líka gert það, og er það í fyrsta sinn sem Vodafone nær að vera með meiri markaðshlutdeild en Síminn. Þar skiptir auðvitað mestu samruni fyrirtækisins við 365 sem tók gildi í lok síðasta árs. Markaðshlutdeild 365 var 3,2 prósent í lok árs 2016.