Nýtt fimm stjörnu hótel, The Retreat, við Bláa lónið var opnað á páskadag.
Ein nótt á hótelinu í júlí kostar frá kr. 180 til 220.000, en gestirnir njóta þjónustu einkaþjóna og hafa aðgang að sérbaðlóni. Alls eru 62 herbergi á þessu nýja og glæsilega hóteli, minnst 40 fermetrar hvert. Stærstu svíturnar eru 60 fermetrar og með aðgang að sérbaðlóni. Tveir nýir veitingastaðir eru á hótelinu, Moss Restaurant og SPA Restaurant. Ný heilsulind ber nafnið Retreat Spa en gestir fara undir yfirborð jarðar til að njóta spa upplifunar.
Smelltu hér til þess að bóka herbergi.