Vill ná til stúlknanna og bjarga þeim

Að óbreyttu verða 134 milljónir stúlkna þvingaðar í hjónaband á næstu tíu árum. Þetta kemur fram í skýrslu Barnaheilla, Save the Children.

Ung kona, menntaskólanemi í Reykjavík berst gegn þessari þróun í gegnum samfélagsmiðla. Þar segir hún sögu sína sem er afar átakanleg en hún var þvinguð í hjónaband í fæðingarlandi sínu, Sómalíu aðeins 11 ára gömul. Eiginmaðurinn var 32 ára frændi hennar. Hún flúði tveimur árum síðar heimalandið, þá þrettán ára og með viðkomu í flóttamannabúðum á Möltu náði hún til Íslands skömmu fyrir 16 ára afmælið sitt. Hér hefur Najmo Fiyasko Finnbogadóttir eignast fjölskyldu, vinkonur og vini, er í framhaldsskóla, stefnir á háskólanám og ver frítíma sínum á samfélagsmiðlum þar sem hún fræðir, styður og styrkir stúlkur í Sómalíu og víðar. ,,Aðstæðurnar sem ég var í þá er raunveruleiki tugmilljóna stúlkna víða um heim í dag. Ég vil ná til þeirra og segja þeim að það sé til betra líf“, segir Najmo m.a. í viðtali í frétta-og umræðuþættinum 21 í kvöld í samtali við Margréti Marteinsdóttur.

Hér má sjá myndband sem UNICEF gerði um baráttu Najmo.