Facebook lætur um 87 milljónir notenda sinna vita um það í dag að greiningarfyrirtækið Cambridge Analytica hafi nýtt persónuupplýsingar af Facebook síðunum þeirra.
Jafnframt fá allir Facebook notendur, 2,2 milljarðar talsins, sendar leiðbeiningar um það hvernig best er að passa upp á persónuupplýsingar á miðlinum.
Í leiðbeiningunum kemur fram hvaða öpp eða smáforrit eru tengd síðum viðkomandi og hvaða upplýsingar öppin hafa aðgang að og geta sent áfram til annarra.
Mark Zuckerberg, forstjóri Facebook, verður í yfirheyrslum hjá þingnefndum á Bandaríkjaþingi á morgun og miðvikudag, þar sem farið verður í saumana á gagnaöryggis og persónuverndarmálum vefmiðilsins.