Norska flugfélagið Norwegianer orðið stærra en skandínaviska flugfélagið SAS mælt í fjölda farþega. Með þessu verða vatnaskil í sögu flugrekstrar á Norðurlöndum. Norwegian er tiltölulega ungt flugfélag. Það var stofnað af Norðmanninum Bjørn Kjos árið 1993 og flaug þá eingöngu á Fokker 50-vélum á innanlandsleiðum í Noregi. SAS var hins vegar stofnað 1946 við sameiningu ríkisflugfélaga Noregs, Svíþjóðar og Danmerkur. Árið 2005 átti Norwegian 13 flugvélar. Tíu árum síðar voru þær orðnar 99 talsins.
Norwegian stærra en sas

Fleiri fréttir
Nýjast