Norskt vindorkufyrirtæki stofnar dótturfyrirtæki á íslandi

Norska vindorkufyrirtækið Zephyr hefur stofnað dótturfyrirtæki á Íslandi sem ber einfaldlega heitið Zephyr Iceland. Framkvæmdastjóri Zephyr á Íslandi er Ketill Sigurjónsson, sem jafnframt er hluthafi í fyrirtækinu.

Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá Zephyr Iceland.

Í tilkynningunni segir að markmiðið með stofnun fyrirtækisins sé að reisa hér á landi vindmyllur og vindmyllugarða. Hyggst Zephyr Iceland bjóða umhverfisvæna raforku á hagkvæmu og samkeppnishæfu verði og mun í því skyni verja verulegum fjármunum til rannsókna á vindaðstæðum á Íslandi.

\"\"

Vindmylla í Mehuken vindmyllugarðinum í Noregi

Einnig er greint frá því að Zephyr hafi verið leiðandi í nýtingu vindorku í Noregi og hafi þegar reist meira en 300MW af vindafli þar í landi. Sú fjárfesting jafngildi meira en 35 milljörðum íslenskra króna. Fyrirtækið er nú að reisa nýjan 200 MW vindmyllugarð í Noregi og verður því senn með um 500 MW af vindafli í rekstri. Það jafngildir raforkunotkun um 75 þúsund norskra heimila.

Zephyr er í eigu þriggja norskra vatnsaflsfyrirtækja. Þau eru Glitre Energi, Vardar og Østfold Energi. Fyrirtækin þrjú eru öll í eigu norskra sveitarfélaga og fylkja.

Í tilkynningunni kemur sömuleiðis fram að Zephyr búi yfir mikilli tæknilegri þekkingu og víðtækri reynslu á öllum þáttum vindorkuverkefna, auk þess að njóta góðra viðskiptasambanda við ýmsa sterka fjárfesta og fyrirtæki. Meðal nokkurra helstu viðskiptavina Zephyr í verkefnum fyrirtækisins fram til þessa eru álframleiðandinn Alcoa, fjárfestingafyrirtækið Black Rock og tæknirisinn Google.