Fjölmörg dæmi eru um að íslenskum hjúkrunarfræðingum bjóðist að vinna í þriggja vikna beit í Noregi á sömu kjörum og þeim býðst fyrir mánaðarstarf á Íslandi og er þá allt flug, gisting og jafnvel uppihald innifalið í samningnum.
Þetta er staðan sem blasir við hjúkrunarfræðingum hér á landi og fær þá í auknum mæli til að hugsa sinn gang eftir að lög voru sett á verkföll þeirra um síðustu helgi. Nú þegar hefur á fimmta tug þeirra sagt upp störfum á Landspítalnum eftir að lögin tóku gildi og bætist sá hópur við að minnsta kosti 20 geislafræðinga sem lagt hafa inn uppsagnarbréf sitt á síðustu dögum af sömu sökum, en það er um þriðjungur starfandi geislafræðinga á spítalanum.
Margir íslenskir hjúkrunarfræðingar hafa pendlað milli Íslands og Noregs upp á fyrrgreind býtti á undanliðnum árum, enda gefst þeim þannig færi á að drýgja laun sín verulega, því samhliða norsku vöktunum eru þeir í færum til að taka aukavaktir heima á Íslandi meðan þeir eru ekki í vinnu ytra. Menntað íslenskt vinnuafl í þessum geira er mjög eftirsótt í Noregi og þykir enda hafa sannað sig í hvívetna í heilbrigðisþjónustunni víða um Noreg á undanförnum árum.
Það má því búast við því að spurnin eftir þessu vel kynnta íslenska vinnuafli minnki ekki í bráð.