Norska liðið í nasistapeysum?

Mynstrið sem prýðir peysur norska alpagreinahópsins á vetrarólympíuleikunum í S-Kóreu veldur uppnámi. Týs-rúnin sem notuð er í mynstrinu hefur óspart verið notuð af öfgahópum sem aðhyllast nasisma, enda mikið notuð af ýmsum öngum þriðja ríkis Hitlers í síðari heimstyrjöldinni.

Meðal hópa sem nota Týs-rúnina núna er nýnasistahópurinn Norræna andstöðuhreyfingin sem starfar í Noregi og Svíþjóð.

Hilde Midthjell, framkvæmdastjóri Dale of Norway, sem framleiðir peysurnar, gefur lítið fyrir gagnrýnina. Hún bendir á að nýnasistar noti líka norska fánann. \"Ekki ætlum við að hætta að nota hann, er það?\" 

Norska Ólympíusambandið segir að Ólympíuhópnum sé það alveg í sjálfvald sett hvort þau klæðist peysunum eða ekki.

Vetrarólympíuleikarnir í S-Kóreu verða settir föstudaginn 9. febrúar.