Norski álframleiðandinn Norsk Hydro ASA hefur gert skuldbindandi tilboð um kaup á öllu útgefnu hlutafé í álverksmiðjunni ISAL af Rio Tinto, að því er fram kemur á vefsíðu mbl.is í morgun.
Þar segir að tilboðið nái einnig til hollensku skautverksmiðjunnar Aluchemie og sænsku ál-flúoríð verksmiðjunnar Alufluor. Um er að ræða skuldbindandi tilboð um að kaupa álverksmiðju Rio Tinto, Rio Tinto á Íslandi hf. („ISAL“), 53% hlut Rio Tinto í hollensku skautverksmiðjunni Aluminium & Chemie Rotterdam B.V. („Aluchemie“), og 50% hlut í sænsku ál-flúoríð verksmiðjunni Alufluor AB („Alufluor“) fyrir 345 milljónir Bandaríkjadali, með fyrirvara um aðlögun kaupverðs eftir lúkningu viðskiptanna.
Í samræmi við ákvæði hollenskra og franskra laga virkjar tilboð Hydro lögboðið samráðsferli við starfsmenn Rio Tinto og aðra hagsmunaaðila. Að því gefnu að samráðsferli verði árangursríkt, og samþykki samkeppnisyfirvalda Evrópusambandsins fáist, er gert ráð fyrir að viðskiptunum verði lokið á öðrum ársfjórðungi 2018. Við það verða ISAL, Aluchemie og Alufluor hluti af starfsemi Hydro á heimsvísu.
„Tilboðið endurspeglar sterka trú okkar á áli, sem er sá málmur sem er í hvað sterkastri sókn á heimsvísu. Að taka þátt á öllum stigum virðiskeðjunnar er lykilatriði í að skapa verðmæti í þessari sókn og ýta undir sjálfbærar aðferðir í rekstri okkar á heimsvísu“ er haft eftir Svein Richard Brandtzæg, forstjóra Hydro í tilkynningu fræa félaginu vegna þessa.