Noregur: listhaus segir af sér

Sylvi Listhaug, dómsmálaráðherra Noregs, hefur sagt af sér, en afsögnin kemur til af meiðandi ummælum sem hún lét falla á fésbókarsíðu sinni um Verkamannaflokkinn, en þau voru á þá leið að flokkurinn tæki hagsmuni hryðjuverkamanna framfyrir öryggi norskra þegna.
 
Hún sagðist í morgun hafa beðist afsökunar á ummælunum en segði af sér vegna þeirrar stjórnmálakreppu sem málið hefði valdið. Sylvi Listhaug sagðist  á blaðamannafundi þegar hún tilkynnti afsögn ætla að halda áfram að berjast fyrir strangari reglum um komu innflytjenda til Norges og að hún setti hagsmuni Noregs, flokksins og tjáningarfrelsi í fyrsta sæti. 
 
Fyrir afsögn Listhaus í morgun voru uppi vangaveltur um hvort ríkisstjórn Noregs myndi lifa málið af - og þykir framvindan engan veginn ljós þrátt fyrir afsögnina.