Noregur fylgi íslandi í umskurðarmáli

Anne Lindboe, umboðsmaður barna í Noregi, segist styðja frumvarp sem nokkrir íslenskir þingmenn undir forystu Silju Daggar Gunnarsdóttur hafa lagt fram þar sem lagt er til bann við umskurði ungra drengja og vonar að það verði samþykkt.
 
Frumvarpið hefur vakið heimsathygli og verið gagnrýnt af trúarleiðtogum múslima, gyðinga, kaþólikka víða um heimd, svo og biskupi Íslands. Lindboe segir í samtali við NRK, sem vitnað er til á vefsíðu RÚV í dag að hún styðji frumvarpið af nokkrum ástæðum. Starfsfólk norska heilbrigðiskerfisins hafi til að mynda sagt það skýrt og greinilega að umskurður ungra drengja sé sársaukafull aðgerð og þjóni engum læknisfræðilegum tilgangi: \"Og svo er þetta líka alltaf spurning um val barnsins, að á það sé hlustað.“
 

Lindboe segist viss um að bann við umskurði drengja muni að lokum ná til Noregs ef það verður samþykkt á Íslandi: \"Það er alltaf kostur þegar eitthvað annað land tekur fyrsta skrefið þannig að ég styð Ísland í þessu máli.“

Rolf Kirschner, læknir á norska Landspítalanum og fyrrverandi forsvarsmaður gyðinga í Noregi, segir við vef NRK að umskurður drengja eigi sér langa sögu . „Þetta er ósanngjörn umræða. Afleiðingarnar af þessari aðgerð eru ekki jafn miklar og margir vilja meina. Ég get ekki séð að þetta sé þannig vandamál að það þurfi dæma fólk í allt að sex ára fangelsi fyrir þetta.“

Fyrir fimm árum skrifuðu umboðsmann barna á Norðurlöndunum undir samnorræna yfirlýsingu um að 15 ára aldurstakmark yrði sett á aðgerðina.