Ferðavefurinn Lonely Planet hefur valið Norðurslóðaleiðina sem þriðja athyglisverðasta áfangastað í Evrópu í ár. Norðurslóðaleiðin er strandvegurinn milli Hvammstanga og Bakkafjarðar, sem þverar Norðurlandið.
Arnheiður Jóhannsdóttur, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, er gestur Sigmundar Ernis í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld. Þar ræðir hún þessa merkilegu leið og hvernig hún komst á heimskortið.
Um hvernig hugmyndina að Norðurslóðaleiðinni hafi borið að segir Arnheiður: „Hugmyndin kviknar upp úr mörgum hugmyndum. Þegar þær eru teknar saman og menn leggjast yfir það hvar í rauninni verðmætin í hugmynd eru, þá verður úr þessi eina. Þetta eru hugmyndir sem komu frá fólki í ferðaþjónustu, fólki sem eru ferðamannafulltrúar sveitarfélaganna, sem voru að skapa, hvert á sínu svæði, svona minni hringi fyrir ferðamenn til að reyna að draga fram eitthvað spennandi. Menn voru svolítið stopp þar, hvert ætti að fara.“
Hún heldur áfram: „Síðan var ákveðið að steypa þessu saman í eina hugmynd, ráða verkefnastjóra í starfið og fara að skoða fyrirmyndir erlendis frá, hvernig svona ferðamannaleiðir væru unnar, á Írlandi og í Wales, sem er okkar stóra fyrirmynd að þessu. Þannig í raun og veru varð hugmyndin til. Úr hugmyndinni um ferðamannahring er síðan verið að þróa eitthvað sem stækkar og stækkar, og verður að þessu frábæra verkefni.“
Arnheiður segir það mikinn heiður að komast á lista Lonely Planet. „Tíu bestu áfangastaðirnir í Evrópu, þar sem við erum í þriðja sæti, sem er náttúrulega bara stórkostlegt, vegna þess að Lonely Planet er sá ferðamiðill sem er stærstur í heiminum og stýrir ferðahegðun gríðarlega mikið. Þannig að þetta er bara stórkostlegt.“
Hún segir að með leiðinni, sem felur meðal annars í sér að ferðalangar fari meðfram sjónum á Norðurlandi og upplifi það sem þar er að sjá, heyra og finna, sé verið að gera eitthvað nýstárlegt: „Þarna erum við í rauninni að fara ótroðnar slóðir í ferðahegðun, við erum að fara skagann okkar, fyrir nesin; taka Vatnsnesið, Skaga, Tröllaskaga, Tjörnesið, Melrakkasléttuna, Langanesið, eitthvað sem menn oft sleppa úr. Við erum búin að liggja yfir því og kortleggja hvað er spennandi að sjá á þessum slóðum; hvar geturðu séð miðnætursól, hvar sérðu norðurljós, hvar er svört strönd sem þú kemst að, hvar eru aðgengilegir vitar, hvar eru góðar gönguleiðir, selir og hvalir að sjálfsögðu og mannlífið. Svo eru eyjarnar sérstaklega dregnar fram, það eru sex eyjar á þessu svæði.“
Nánar er rætt við Arnheiði í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.