Norðursigling vekur heimsathygli

Norðursigling hefur verið tilnefnd til verðlauna Alþjóðlega ferðamálaráðsins (World Travel & Tourism Council - WTTC) árið 2016, en WTTC Tourism for Tomorrow Awards eru ein allra virtustu verðlaun sem veitt eru innan ferðaþjónustunnar og eru ígildi gullstaðals í sjálfbærri ferðaþjónustu.

Þau 15 fyrirtæki sem tilnefnd hafa verið voru valin úr hundruðum umsókna sem bárust frá 62 löndum í öllum heimsálfum. Norðursigling er eina norræna fyrirtækið sem komst í úrslit í ár og er eitt þriggja fyrirtækja sem tilnefnd eru í flokki nýsköpunar. Hátíðleg verðlaunaathöfn fer fram á 16. alþjóðafundi WTTC í Dallas í Texas þann 7. apríl nk.

\"Þetta er mikill heiður fyrir okkur og viðurkenning á þeirri umhverfisstefnu sem fyrirtækið hefur fylgt frá upphafi. Verðlaunin eru með þeim virtustu sem hægt er að fá í þessum geira en WTTC er rödd hinnar alþjóðlegu ferðaþjónustu,“ segir Guðbjartur Ellert Jónsson, framkvæmdastjóri Norðursiglingar.

WTTC leggur áherslu á sjálfbæran vöxt ferðaþjónustu og vinnur með ríkisstjórnum og alþjóðastofnunum að því að skapa störf og hvetja til hagvaxtar í tengslum við hana: \"„Við höfum ávallt rekið umhverfisvænt fyrirtæki en tókum það skrefinu lengra síðasta sumar þegar við vígðum rafmagnsskipið Ópal. Viðbrögðin, bæði hérlendis og erlendis, hafa komið okkur skemmtilega á óvart. Við höfum ekki aðeins fundið fyrir aukinni athygli heldur erum við nú í þriðja sinn tilnefnd til stórra, alþjóðlegra verðlauna á sviði ferðamennsku og sjálfbærrar þróunar,“ segir Guðbjartur en Norðursigling er einnig í úrtaki 10 fyrirtækja  sem tilnefnd eru til stærstu umhverfis- og viðskiptaverðlauna Evrópu, GreenTec Awards 2016. Norðursigling vann silfurverðlaun á World Responsible Tourism Awards síðastliðið haust.