Norðurál vísar á bug ásökunum forstjóra Landsvirkjunar í garð stjórnenda félagsins í allmörgum fjölmiðlum í gær. Af máli hans megi draga þá ályktun að nær öll gagnrýni sem beinist að Landsvirkjun í opinberri umræðu, í málum af ýmsum toga, sé á ábyrgð Norðuráls.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsvarsmönnum álversins í Hvalfirði, en hún er sett fram vegna orða Harðar Arnarsonar í síðustu viku þess efnis að gildandi raforkusamningur við Norðurál sé þjóðinni óhagstæður - og í raun úreltur, enda gerður við aðstæður fyrir 20 árum sem ekki eigi lengur við; því þurfi að semja á ný svo báðir samningsaðilar verði ánægðir, þar á meðal Landsvirkjun.
Forráðamenn Norðuráls segja einnig í tilkynningunni að forstjóri Landsvirkjunar hafi látið að því liggja í nýlegum skrifum sínum að Norðurál stýri ákveðnum verkalýðsfélögum: \"Eins og allir sjá þá eru þessar fullyrðingar út í hött,\" segja Norðurálsmenn.
\"Viðræður um samningsbundna framlengingu orkusamnings milli fyrirtækjanna hafa farið fram af kurteisi og virðingu og góður gangur verið í þeim nýlega. Það er því óvænt og mikil vonbrigði að Landsvirkjun skuli koma fram með þessum hætti eftir nærri 20 ára farsælt samstarf fyrirtækjanna,\" segir í tilkynningu Norðuráls, en þar er jafnframt bent á að Norðurál muni áfram vinna af heilindum að samkomulagi við Landsvirkjun og voni að Landsvirkjun geri hið sama.