Horfur eru á að um leið og kröpp og vaxandi lægð þokist til norðurs skammt fyrir austan land í dag að það bresti á með vestan- og norðvestan 20 til 25 m/s austanlands með morgninum og standi fram undir kvöld.
Mikið skafrenningskóf verður þá á fjallvegum eins og Fjarðarheiði, Oddsskarði sem og á Mývatns- og Möðrudalsöræfum. Hviður fara allt upp undir 40 m/s í fjarðarbotnum frá Hamarsfirði og austur á Borgarfjörð. Þá verður krapahríð norður með ströndinni, að Tjörnesi að telja.
Mikil lausamjöll er á leiðum frá Akureyri á Húsavík og á Mývatn. Þar mun skafa með hvassri vestanáttinni í allan dag.
Lögreglan beinir þeim tilmælum til fólks að vera ekki á ferðinni úti á þjóðvegum landsins að nauðsynjalausu og allra síst á illa útbúnum bifreiðum.