Árlega gefa stjórnvöld í Japan út \"Hvíta bók\" um þjóðaröryggismál. Í dag kemur út í Japan bókin fyrir árið 2017. Að venju eru höfundar afar gætni í hættumati sínu.
Vissulega sé tilefni til fyrir Japan að fylgjast vel með Norður-Kóreu og Kína og Rússlandi.
Höfundarnir telja að japönsk stjórnvöld ættu að íhuga að koma upp gagneldflaugakerfi vegna langtíma áforma Norður-Kóreu um að smíða og fjöldaframleiðslu langdrægra eldflauga sem geta borið kjarnorkuvopn. Nokkuð sé þó í að Norður-Kórea eignist slík vopn.
Um Kína og Rússland segja höfundar að atferli flughers og flota þessara tveggja ríkja á hafsvæðum umhverfis Japan kalli á stöðuga árvekni Japans.
Þó beri að varast að ofmeta hernaðargetur Kína og Rússlands.
Yfirlætistal ráðamanna í Kína og í Rússlandi ásamt vopnskaki á heræfingum umhverfis Japan segi fátt um raunverulega hernarburði Kína og Rússlands en meira um framtíðar áform þessara ríkja.
Nánar www.uk.mobile.reuters.com