Norður-kórea

Donald J. Trump forseti Bandarikjanna fundaði með Xi Jinping forseta alþýðulýðveldisins Kína. Þeir hittust í Bandaríkjunum og hittast aftur seinna á þessu ári og þá í Kína. 

Þeir ræddu saman um Norður-Kóreu. Ekki fer á milli mála að Bandaríkin eru fullfær um að taka einhliða ákvarðanir um aðgerðir gegn Norður-Kóreu séu stjórnvöld í Kína ófús að rétta Bandaríkjunum og Suður-Kóreu hjálparhönd. 

Ögranir og ábyrgðalausar og ógnandi heræfingar Norður-Kóreu og þrotlaus vinna Norður-Kóreumanna við að hanna og smíða kjarnavopn eru stærsta ógnin í þessum heimshluta segja talsmenn Bandaríkjastjórnar.