Varaforseti Bandaríkjanna er á ferð um Asíu. Varaforsetinn stappar stálinu í Suður-Kóreumenn og hvetur til aðgerða til að stöðva áform Norður-Kóreu um að eignast strategísk kjarnavopn og langdrægar eldflaugar.
Vandséð er hvernig Bandaríkin fá alþýðulýðveldið Kína til að taka það verk að sér að sveigja leiðtoga Norður-Kóreu af þeirri braut sem þeir eru á. Kína mun ekki gera neitt sem veikir stöðu leiðtoga Norður-Kóreu eða skapar ólgu meðal íbúa landsins.
Sérfræðingar um málefni Asíu telja að Bandaríkin viti fullvel að Kína hvorki getur né vill hafa afskipti af innanlandsmálum Norður-Kóreu. Sömu sérfræðingar telja að kínversk stjórnvöld bíði átekta. Varaforseti Bandaríkjanna ljúki Asíuferð sinni og að henni lokinni þá sé líklegt að spennufall verði. Norður-Kóreumenn fagni meintum sigri í taugastríði við bæði Beijing og Washington D C.
Þolinmæði í milliríkjasamskiptum í Asíu er óþrjótandi er haft eftir ónefndum embættismanní í Japan. Hann bætti við að Norður-Kóreumenn vita sem er að ekki verður gripið til hernaðaraðgerða gegn landinu af jafn litlu tilefni og tilraunum með að byggja langdrægar eldflaugar eða orðrómi um smíði kjarnavopna. Kína er og verður þess utan sá verndari sem Norður-Kórea getur reitt sig á.
Nánar www.bbc.com