Norðmenn tróna enn á toppnum

Norðmenn bættu tveimur gullum í safnið á 10. keppnisdegi vetrarólympíuleikanna í Pyeongchang með sigri í skautahlaupi og skíðastökki og tróna enn á toppi verðlaunakeppninnar með 28 verðlaun alls.

Frakkar blönduðu sér í röð efstu þjóða með því að næla í silfur í ísdanskeppninni, aðeins hársbreidd frá einkunn gullverðlaunahafanna Tessa Virtue and Scott Moir frá Kanada. Kanadíska parið er orðið sigursælasta skautapar leikanna frá upphafi.