RÚV vitnar í norsku fréttastofuna NTB sem segir að forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hefði náð forystu í umræðunni með því að bjóða öllum helstu þungaviktarmönnum í þessum fræðum til sín á ráðstefnu í Reykjavík. Meira að segja Francois Hollande Frakklandsforseti hefði komið. Á sama tíma væri nákvæmlega ekkert að gerast í Noregi og Barentshafsráðið, sem átti að vera umræðuvettvangur í boði Norðmanna, er hálflamað og forsmáð. Heimsbyggðin er farin að líta á Reykjavík sem höfuðborg Norðurslóða þrátt fyrir samþykktir um að Tromsö ætti að vera það. Enginn kemur til Tromsö.
Þessi núningur milli frændþjóðanna Íslendinga og Norðmanna er ekki nýr af nálinni, að því er fram kemur í sömu frétt. Síðast þegar Ólafur Ragnar Grímsson mætti á norska ráðstefnu um Norðurslóðir í Bodö vorið 2014 skarst í odda með honum og norskum undirráðherra, sem vildi að ályktað yrði á ráðstefnunni gegn framgöngu Rússa í Úkraínu og á Krím. Forsetinn sló tillöguna út af borðinu með þeim orðum að þetta væri ekki mál á dagskrá ráðstefnunnar. Þetta fór illa í Norðmenn en var þó látið kyrrt liggja.