Norðmenn reisa hæsta timburhús í heimi

Í gær var tekið í notkun í Björgvin í Noregi hæsta timburhús sem reist hefur verið í heiminum.

Húsið er fjórtán hæðir, grind úr límtré sem tilbúnum einingum er raðað inn í. Frá þessu segir á vef Skógrækar ríkisins.

Fram kemur að heimsmetið verði þó slegið innan tveggja ára því þá verði 20 hæða timburháhýsi í Vancouver í Kanada tilbúið.

Kolefnisfótspor timburhúsa er sáralítið miðað við hús úr stáli og steinsteypu og timburhús geyma í sér kolefnið meðan þau standa.

Timbur er eina endurnýjanlega byggingarefnið sem völ er á og stuðlar að bindingu koltvísýrings.

Fram kemur á veg Skógrækarinnar að áform sem þessi séu mjög í takt við loftslagsumræðuna og lífhagkerfið svokallaða sem mjög er til umræðu um þessar mundir. Norðmenn hafi tekið mjög afgerandi og ákveðin skref í átt til lífhagkerfisins og vinni ekki aðeins á heimavelli að slíkum málum heldur víða um heim, ekki síst í fátækari löndum.