Norðmenn með langflest verðlaun

Litlar breytingar eru á röð sex eftstu þjóða í verðlaunatöflunni eftir 7. keppnisdag á vetrarólympíuleikunum í Pyeongchang. Norðmenn eru enn í öðru sæti en með langflest verðlaun, alls 21. Norsku gullin eru hins vegar aðeins sjö talsins en níu gullpeningar Þjóðverja vega þyngra.

Kanadamenn skutust upp í fjórða sætið í stað Bandaríkjanna.

Úrslitin í sviggreinum kvenna eru athyglisverð fyrir þær sakir að í þessum þremur greinum urðu verðlaunahafarnir níu - enginn keppandi hlaut meira en ein verðlaun! Myndin á töflunni er af Ester Ledecka frá Tékklandi sem tók gull í risastórsvigi. Ledecka hefur látið að sér kveða í brettafimi en aldrei áður náð verðlaunasæti í skíðakeppni, hvorki á Ólympíuleikunum né heimsbikarkeppninni. Hún trúði varla igin augum þegar hún sá tíamann sinn. Frida Hansdotter frá Svíþjóð sigraði í svigi og hin bandaríska Mikaela Shiffrin í stórsvigi.