Ekkert lát er á sigurgöngu Norðmanna í verðlaunakeppni vetrarólympíuleikanna í Pyeongchang.
Þeir héldu áfram að bæta medalíum í safnið á 11. keppnisdegi leikanna, gulli í sprettgöngu karla, silfri í bruni kvenna og bronsi í sprettgöngu kvenna, þar sem Marit Björnsen varð um leið methafi í fjölda verðlauna á vetrarólympíuleikum frá upphafi. Hún hefur alls unnið til 14 verðlauna.
Verðlaun Norðmanna eru orðin fleiri en liðið sagðist stefna á fyrir leikanna. Takmarkið var 30 verðlaun en þau eru orðin 32.
Myndin er af Ragnhildi Mowinckel fagna silfrinu eftir brunkeppnina.