Veðrinu misskipt milli norðurs og suðurs

Vorið er komið sunnan heiða. Verður ágætis veður á syðri hluta landsins næstu daga. Norðlægar áttir verða ríkjandi á öllu landinu sem er ávísun á fremur svalt veður norðan heiða. Bændur norðan- og austanlands gætu þurft að bíða ögn með að beita fé í haga á sauðburði næstu dagana. Samkvæmt langtímaspám gæti jafnvel snjóað ögn norðanlands fyrrihluta næstu viku.
Hiti verður í samræmi við árstíma í Reykjavík næstu daga með bjartviðri og tíðum sólarglennum. Samkvæmt langtímaspánni norsku, yr.no, verður hitinn í Reykjavík 3-10 stig næstu 7-10 dagana en bláar tölur munu áfram sjást norðan heiða næstu daga skv. sama veðurmiðli. Engin sól er í kortunum á Akureyri næstu 10 daga ef morgundagurinn, þriðjudagur, er undanskilinn. Spár um næturfrost gætu ræst norðanlands.
Það má því segja að fæðingarhríðir einkenni hið norðlenska vor en betur mun viðra á höfborgarbúa og nágranna þeirra.