Norðanáhlaup og fannfergi í kortum

Norðanáhlaup er í kortunum með fannfergi í byggð á norðanverðu landinu á næstu dögum, en útlit er fyrir að veðrið verði einna verst á föstudag, en þá gengur í hvassa norðanátt með slyddu eða snjókomu um hádegi.

Útlit er fyrir að veðrið verða einna verst um norðvestanvert landið eins og spáin í dag gerir ráð fyrir, en búast má við að hiti verður um frostmark á þessu svæði á morgun og næstu daga og raunar fram á helgina.

Slyddu fer að gæta þegar á morgun - og eru ökumenn hvattir til að fara með gát á þjóðvegum.

Margir fjallvegir inn til landsins eru nú þegar farnir að teppast og lokast líklega alveg um helgina.