Nooyi hættir hjá pepsico

Indra Nooyi, for­stjóri Pepsico og ein valda­mesta kona heims, læt­ur af störf­um hjá mat­ar- og drykkjar­fram­leiðand­an­um í októ­ber. Frá þessu var greint í morg­un. Nooyi hef­ur verið mjög far­sæl í starfi sínu hjá Pepsico frá því hún tók við for­stjóra­stóln­um árið 2006. 

Nooyi, sem kom til Íslands árið 2013, af til­efni 100 ára af­mæl­is Ölgerðar­inn­ar, verður stjórn­ar­formaður Pepsico þar til snemma árs á næsta ári. Ramon Lagu­arta verður for­stjóri Pepsico.

Á stjórn­ar­tíma henn­ar gengu í gegn ýms­ar breyt­ing­ar á fyr­ir­tæk­inu, svo sem auk­in áhersla á holl­ari vör­ur í vöru­línu fyr­ir­tæk­is­ins. Nooyi, sem er fædd á Indlandi, hef­ur alls starfað hjá Pepsico í 24 ár. Tekj­ur Pepsico tæp­lega tvö­földuðust í stjórn­artíð Nooyi. Þær voru 35 millj­arðar Banda­ríkja­dala árið 2006 en voru á síðasta ári 63,5 millj­arðar dala.

Nánar á

https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2018/08/06/nooyi_haettir_hja_pepsico/