Gengi hlutabréfa nær allra skráðra félaga í Kauphöll Íslands lækkuðu við opnun markaðar í dag. Mest hafa bréf Össurar lækkað, eða um rúmlega 6%, en þau viðskipti nema þó ekki nema ellefu milljónum króna.
Gengi bréfa í Marel hefur lækkað um nær 3% í samtals 140 milljóna króna viðskiptum og hlutabréf í Icelandair Group hafa lækkað um 2% í um þrjú hundruð milljóna viðskiptum, að því er fram kemur í samantekt Kjarnans um titringinn á hlutabréfamarkaðnum í dag.
Lækkanir í dag koma í kjölfar nokkurra hækkana á hlutabréfum síðustu vikur. Í í byrjun ágúst var úrvalsvísitala Kauphallarinnar, OMXI8, rúm 1530 stig og reis hæst í ríflega 1600 stig í síðustu viku. Hún hefur nú gefið nokkuð eftir og nemur lækkun það sem af er degi um 1,7%.
Mánudagurinn hefur verið í svartara lagi á hlutabréfamörkuðum víðast hvar í heiminum. Í Kína lækkaði verð hlutabréfa um rúm 8% í morgun og hafa ekki lækkað meira frá því 2007. Óvissa í Asíu hefur smitast inn á markaði í Evrópu. Þar hafa helstu vísitölur í London, París og Frankfurt lækkað um 3% það sem af er degi. Í Bandaríkjunum hafa hlutabréf einnig gefið eftir undanfarna daga.