Nokkuð fleiri kosið nú en síðast

Sam­kvæmt nýj­ustu töl­um voru 7.723 bún­ir að greiða at­kvæði á kjörstað í Reykja­vík klukk­an tólf. Mbl.is hefur tekið saman tölurnar en um 600 fleiri hafa kosið á þessum tíma en á sama tíma 2014.

90.111 manns eru alls á kjör­skrá.

Í Kópavogi er kjörsókn svipuð og síðast eða um 7 prósent. Klukk­an tólf höfðu 1.878 greitt at­kvæði í Kópa­vogi, á kjör­skrá eru 25.789.

Í Hafnar­f­irði höfðu 1.443 kjós­end­ur greitt at­kvæði klukk­an tólf. Þar eru 20.786 á kjör­skrá og kjör­sókn því um 7 prósent.

Í Mos­fells­bæ höfðu 728 greitt at­kvæði klukk­an 12, kjör­sókn er því rúm 11 prósent sem er nokkuð hærra en í síðustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­um.

Í Reykja­nes­bæ var kjörsókn í hádeginu 5,6 prósent.

Á Ak­ur­eyri hafði mjög svipað hlutfall kosið í hádeginu og síðast eða tíu present. 

Fylgjast má með kjörsókn á hverjum klukkutíma hér á vef Reykjavíkurborgar og sjá samanburð á milli kosninga. Tölurnar um kjörsókn eru uppfærðar á klukkutíma fresti.