Nokkrar vikur urðu að tveimur og hálfu ári

„Þarna kemur skellurinn. Hún eignast þarna tvíbura og er nánast bara á götunni. Þetta er þá eina úrræðið, það var starfrækt vöggustofa í Reykjavík á vegum Thorvaldsens félagsins sem hét Hlíðarendi. Það verður úr að börnin fara þangað nokkurra vikna gömul og ég er s.s. annar tvíburinn. Hún ætlar að koma undir sig fótunum, en það er svo sem ekkert áhlaupaverk þá frekar en núna að eignast þak yfir höfuðið, til þess að geta tekið á móti börnunum og vera búin að safna sér upp sjóði svo hún geti verið með þeim heima.“

Þetta segir Viðar Eggertsson leikari, leikstjóri, leikhúsmaður og verkefnastjóri hjá Gráa hernum. Hann er í einlægu spjalli við Sigmund Erni í Mannamáli á Hringbraut í kvöld. Þar fer hann um víðan völl og ræðir m.a. frumbernsku sína, sem sætir slíkum tíðindum að um hana hefur verið gerður útvarpsþáttur sem hefur verið endurspilaður mörgum sinnum vegna vinsælda.

Viðar heldur áfram lýsingu á fyrstu árum ævi sinnar, þar sem hann dvaldi á vöggustofu ásamt tvíburasystur sinni: „Það lengist í því og það kemur upp þessi staða að við erum orðin miklu eldri en önnur börn og við erum búin að vera lengur en önnur börn. Þetta var hugsað sem nokkurra vikna úrræði, kannski örfárra mánaða úrræði. Í samráði við forstöðukonu heimilisins, sem hafði tekið ástfóstri við mig, hún ráðleggur henni [móður tvíburanna] bara að hafa börnin áfram þarna. Svo bara líður tíminn og við erum orðin tveggja og hálfs árs þegar við loksins sleppum út. Þetta var svona eins og að vera á gjörgæslu. Þetta var algjörlega sterílt umhverfi, óskaplega hreint. Ekki neitt annað en rúm barnanna og börnin voru í rúmunum alltaf. Engar myndir á veggjunum og það var ekkert sem örvaði neina skynjun.“

Hann lýsir því hvernig foreldrar barnanna sem komu í heimsókn fengu aldrei að snerta eða tala við börnin. Þeir hafi einungis fengið að horfa á börnin í gegnum stóra glerrúðu. Auk þess hafi börnin ekki fengið neina útivist. Einu undantekningarnar á því voru sérstakir blíðviðrisdagar, og þá voru börnin keyrð út í rúmunum, sem þau máttu þó ekki yfirgefa.

Nánar er rætt við Viðar í Mannamáli í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 20:00.