Nokkrar líkur á að frjósi saman

Nokkrar líkur eru á að sumar og vetur frjósi saman í nótt a.m.k. í sumum landshlutum en samkvæmt þjóðtrúnni boðar það gott sumar.

Veðurstofan hefur birt spá um veðrið næsta sólarhring. Suðvestan 5-10 m/s og skúrir eða él, en þurrt að kalla verður NA-lands. Suðvestan og vestan, 8-15 eftir hádegi, hvassast við S-ströndina. Skúrir eða él, en úrkomulítið SA-til. Norðvestan 8-15 og úrkomuminna í kvöld, hvassast á annesjum A-til.

Hæg vestanátt og stöku skúrir eða él á morgun. Hiti 0 til 8 stig að deginum, hlýjast SA-lands.

Miklar sveiflur hafa verið í veðri síðustu daga víða um land. Þannig var logn, sól og 15 stiga hiti á Akureyri í síðustu viku en svo gerði stórhríð og er jörð nú alhvít í höfuðstað Norðurlands. Allan snjó tók upp fyrir nokkrum vikum á höfuðborgarsvæðinu og farfuglar streyma nú til landsins, hinir ljúfu vorboðar.