Nokkir vg-liðar í fýlu út í katrínu

Nokkr­ir af fyrr­um fé­lög­um Katrín­ar Jak­obs­dótt­ur for­sæt­is­ráðherra hættu að ræða við hana eft­ir stjórn­ar­mynd­un Vinstri grænna, Sjálf­stæðismanna og Fram­sókn­ar og hafa enn ekki rætt við hana.

Þetta kom fram í þættinum Ísland vaknar á útvarpsstöðinni K 100 í morgun, en hann hóf göngu sína í bítið í umsjá Loga Bergmanns Eiðssonar, Friðriku Hjördísar Geirsdóttur og Rúnars Freys Gíslasonar.

Katrín kvaðst þó eiga von á því að einhverjir félaganna ættu eftir að koma til baka þegar fram liðu stund­ir, en sagði jafn­framt að sá hátt­ur inn­an flokks­ins að tala beint út, sem oft komi fram sem mik­ill órói, þýði að hún hafi ekki áhyggj­ur að fólk stingi hana í bakið: \"Fólk er mjög direct,“ sagði hún í viðtalinu á K100 í morg­un.

Ní­utíu dag­ar eru frá því hún tók við embætti for­sæt­is­ráðherra og var hún í viðtal­inu spurð út í næstu 90 daga. Var meðal ann­ars bent á að frétt­ir síðustu daga og vikna bentu til þess að hag­vöxt­ur væri aðeins á niður­leið. Sagði Katrín að ef hag­vöxt­ur væri á niður­leið þýddi það að í dag væri fín tíma­setn­ing fyr­ir hið op­in­bera til að ráðast í fjár­freka upp­bygg­ingu sem rætt hafi verið um.

Í viðtal­inu kom einnig fram að Katrín hefði upp­haf­lega ekki ætlað sér að verða stjórn­mála­maður. Bræður henn­ar hefðu til að mynda báðir verið mun áhuga­sam­ari um póli­tík meðan hún hafi ætlað að vera bóhem eða „frjáls vera.“ Sagði hún að áður fyrr hafi henni ein­fald­lega ekki þótt stjórn­mála­fólk spenn­andi.

Spurð um áhuga fjöl­skyld­unn­ar á póli­tík sagði hún eig­in­mann sinn hafa mjög mik­inn áhuga á póli­tík og stund­um hafi mikið gengið á í póli­tísk­um átök­um á heim­il­inu. Hún sagði það þó lík­lega erfiðari stöðu ef maki stjórn­mála­fólks hefði eng­an áhuga á stjórn­mál­um meðan líf hins væri und­ir­tekið því mál­efni, að því er fram kemur í frétt mbl.is um málið í morgun.