Nói hrafn lést eingöngu 5 daga gamall - fimm starfsmenn landsspítalans eru með stöðu sakbornings

Fimm starfsmenn Landsspítalans eru með stöðu sakbornings í máli þar sem hjón misstu nýfætt barn sitt vegna læknamistaka. RÚV fjallaði ítarlega um málið í kvöld. Lögreglurannsókn er enn í gangi, en hjónin Karl Olgeirsson og Sigríður Eyrún Friðriksdóttir misstu son sinn, Nóa Hrafn, fyrir meira en þrem árum. Nói Hrafn lést þegar hann var eingöngu fimm daga gamall vegna óafturkræfs heilaskaða sem hlaut vegna mistaka starfsfólks Landsspítalans.
 
„Og núna þegar við skoðum málið og veltum fyrir okkur á hvaða stigi það er þá er ljóst að þessi niðurstaða frá lögreglunni, það er engin ákæra komin og örlar ekkert á henni vegna þess að málið er einhvers staðar í skoðun á einhverju skrifborði. Hugsanlega erlendis og við þurfum ekkert að bíða eftir niðurstöðu í þessari lögreglurannsókn til þess að geta haldið skaðabótakröfunni áfram á hendur ríkinu. Það er búið að tilkynna ríkislögmanni núna að við óskum eftir því að hans afstaða liggi fyrir sem fyrst,” segir Lára V Júlíusdóttir, lögmaður hjónanna. 
 
Lára segist hafa sent ríkislögmanni bréf í morgun þess efnis að nú þyrfti hann að taka afstöðu til bótakröfunnar, þar sem ekkert bólaði á rannsóknarniðurstöðu lögreglu.

 

„Ég geri ráð fyrir því að ef þessu verður synjað og málið fari fyrir dóm, sem ég vissulega vona að þurfi ekki að koma til, þá má gera ráð fyrir því að málinu verði stefnt inn til dóms í haust, eftir réttarhlé í september,” segir Lára.

Samkvæmt rannsókn Landlæknis kom fram að ástæða þess að Nói Hrafn hafi látist væri vegna mistaka sérfræðilæknis og ljósmæðra á Landsspítalanum. Þá hefur Landsspítalinn sjálfur viðurkennt að mistök hafi átt sér stað.