Nóg að gera hjá björgunarsveitum í dag

Björgunarsveitir á suðurlandi voru kallaðar út í dag klukkan 18 vegna göngumanns í sjálfheldu í Goðahrauni, rétt utan við gönguleiðina yfir Fimmvörðuháls. Félagi mannsins tilkynnti um atvikið, en maðurinn hafði hafði verið að klifra þegar hann rann niður á syllu og festi fótinn á milli steina. Hann er ekki með sjáanlega áverka en er þó kvalinn.

Miðað við lýsingu á aðstæðum þá er möguleiki á því að björgunarsveitafólk þurfi að notast við sérstakan búnað til fjallabjörgunar við að ná manninum upp af syllunni. Er það gert til að tryggja öryggi hans og björgunaraðila.

Fimm hópar björgunarsveitafólks eru á leiðinni upp Fimmvörðuháls á bílum og sexhjólum í átt að manninum. Að öllum líkindum verður hægt að komast á sexhjóli langleiðin að mönnunum. Áætlað er að fyrstu hópar verði komnir á vettvang eftir rúman hálftíma.

Nóg var að gera hjá Hálendisvakt björgunarsveita í dag. Björgunarsveitir voru einnig kallaðar út í hádeginu á svæðinu norðan Vatnajökuls um hádegið í dag vegna konu sem var slösuð rétt við Herðubreiðarlindir. Þegar komið var að konunni sem var í stórum hóp þýskra ferðamanna kom í ljós að hún virtist illa fótbrotinn. Var brotið rétt af, búið um konuna og er núna verið að flytja hana niður á þjóðveg en aksturinn þangað tekur um tvær klukkustundir. Þar tekur sjúkrabíll við henni og kemur henni á sjúkrahús, líklega á Akureyri.