Mennirnir sem létust í flugslysinu suðvestur af Hafnarfirði í gær hétu Hjalti Már Baldursson og Haukur Freyr Agnarsson.
Þeir létu lífið þegar flugvél þeirra brotlenti í hrauninu vestan Kleifarvatns skammt frá Hraunkotsstapa. Þeir voru úrskurðaðir látnir á vettvangi.
Hjalti Már var búsettur í Hafnarfirði. Hann lætur eftir sig eiginkonu og tvö börn.
Haukur Freyr var búsettur í Garðabæ. Hann var ógiftur og barnlaus.